|
Dr. Þorbjörg Hróarsdóttir, sem hefur starfað undanfarin tíu ár við Háskólann í Tromsø í Noregi, fékk nýlega stóran styrk frá Vísindaráði Noregs til málvísindarannsókna. Styrkurinn nemur rúmum 6 milljónum norskra króna eða um 60 milljónum íslenskra króna. Verkefni Þorbjargar kallast „Setningafræðilegur arkitektúr“ og fjármagnar styrkurinn rannsóknaraðstöðu, ásamt fjármögnun til að ráða doktorsstúdenta, tækjakostnað, ráðstefnukostnað, ferðalög og fleira.
|